10.mars fór ég á Útspil 2015. Ég endurvakti Instagram reikninginn minn, spjallaði um noktun á upplýsingatækni og spilaði skemmtiegan leik. Ég fékk 16 orð í töflu með fjórum röðum og fjórum dálkum og átti að finna orðin sem pössuðu saman. Þessi leikur var eins og sá sem er í Útsvarinu. Mjög skemmtilegt. Leikinn er að finna á Classtools.net.
Mig langar að búa til verkefni fyrir nemendur á framhaldsskólabraut þar sem þau nota símana á uppbyggilegan hátt.
Mig langar að búa til verkefni fyrir nemendur á framhaldsskólabraut þar sem þau nota símana á uppbyggilegan hátt.
- Ég prófaði að búa til ferlimöppu með Book Creator. Mér fannst auðvelt að nota það forrit í Ipadinum en því miður ekki eins auðvelt að deila afurðinni svo ég hætti við að nota það.
- Ég prófaði næst Sway sem er nýtt forrit frá Microsoft. Það er auðvelt en mér fannst ég ekki hafa nógu góða stjórn á hvar hlutirnir lentu á síðunni svo ég hætti við það. Það sem ég var búin að gera er á https://sway.com/bQb4ytfBZquv07Wi.
- Þá var næsta skref að setja upp bloggsíðu og þess vegna er ég að skrifa þetta.