Þann 14. mars sótti ég námsbúðir vendinám hjá Keili. Dagurinn byrjaði á innleggi frá Jonathan Bergmann og Aaron Sams. Þessi tveir hafa verið í samstarfi við Keili og hafa verið með ráðstefnu hér áður.
Þeir tala um að leggja ekki fyrir nemendur spurningar sem hægt er að gúgla, eins og t.d. hvað heitir höfuðborg Íslands. Það var gaman að sjá hvernig annar þeirra talaði við símann. Ég hafði ekki séð það áður. Dæmi um spurningu sem ekki var hægt að gúgla var: Berðu saman þessi tvö efni í efnafræði.
Við sendum nemendur heim að gera erfiðasta hlutann, þ.e. að leysa verkefnin.
Flipped Classroom snýr Blooms taxonomy pýramídanum við eða gerir hann eiginlega að tígul ??
Nemendur læra á mismundandi hátt og vendinám bíður upp á meiri sveigjanleika. Þau geta horft á myndböndin aftur í tíma, reynt að leysa verkefnið og fengið hjálp. Þannig eru meiri möguleikar að nemendur fari ekki yfir í næsta kafla án þess að hafa náð efninu.
Það getur orðið mikill hávaði í kennslustofunni þar sem nemendur eru að ræða um verkefnin og því er mikilvægt að hafa einhvern stað þar sem nemendur geta unnið í rólegheitum.
Helstu mistök sem kennarar gera þegar þeir byrja að búa til myndbönd eru að þau eru of löng. Þeir mæta með að margfalda bekkjarnúmer með einni eða einni og hálfri mínútu þannig að myndband fyrir tíunda bekk má ekki fara yfir 15 mínútur.
Ef kennari þarf að koma miklu efni til skila er betra að gera nokkur stutt heldur en eitt langt.
Það þarf að kenna nemendum að horfa á myndböndin. Ég veit ekki hvað þeir áttu við með þessu - fékk ekki neina viðhlítandi skýringu á þessu.
Vísað í tengil á þessari síðu. http://flippedclassroom.org/tools
Þeir mæla með að nota ekki efni frá öðrum. Það vantar persónulegu tengslin ef það er gert.
Ekki byrja of stórt, byrja bara á einni kennslustund.